28 Janúar 2021 17:05

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þótt myndin sé óskýr má ætla að einhverjir geti borið kennsl á mennina.