3 Mars 2023 11:46
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Arnari Gunnarssyni, 44 ára. Stefán Arnar er búsettur á Arnarhrauni í Hafnarfirði, en síðast er vitað um ferðir hans síðdegis í gær. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Stefáns Arnars, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.