16 Febrúar 2021 22:52

Þrír karlmenn, tveir á fertugsaldri og einn á fimmtugsaldri, voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, eða til þriðjudagsins 23. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.