24 Október 2024 10:13

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar andlát konu á sjötugsaldri.

Tilkynnt var um málið um miðnættið í gær og í kjölfarið var einn handtekinn í tengslum við það.

Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.