19 Mars 2010 12:00

Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur lokið við gerð ítarlegrar matsskýrslu fyrir árið 2010 þar sem mat er lagt á skipulagða glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum hér á landi. Skýrslan er trúnaðarmál, en hér fer á eftir stytt og opinber útgáfa hennar. Árin 2008 og 2009 voru gerðar skýrslur sama efnis og hluti þeirra kynntur opinberlega. Tilgangurinn með gerð slíks mats er að upplýsa stjórnvöld og almenning um stöðu þessara mála.

Lögregla mun hér eftir sem hingað til leggja ríka áherslu á að tryggja sem best öryggi borgaranna og vinna gegn starfsemi af þeim toga sem lýst er í skýrslunni.

Opinbera útgáfu matsskýrslu ársins 2010 um skipulagða glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum má nálgast hér.