22 Janúar 2010 12:00

Maðurinn sem slasaðist í rörasprengjuslysi að kvöldi þriðjudagsins 19. janúar s.l.  í Hveragerði lést á gjörgæslu Landspítala Háskólasjúkrahúss  í nótt.    Hann hét Örn Norðdahl Magnússon og var fæddur 3. október 1986,  búsettur í foreldrahúsum að Borgarhrauni 33 í Hveragerði.  Hann var ókvæntur og barnlaus.  

Rannsókn tildraga slyssins er í höndum lögreglunnar á Selfossi.