3 Febrúar 2025 16:48
E. Agnes Eide Kristínardóttir hefur verið ráðin yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mun stýra rannsóknarsviði þess. Agnes býr yfir áratugareynslu af lögreglustarfinu, en hún hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík vorið 1991. Agnes starfaði þar til ársloka 2006 og síðan hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá ársbyrjun 2007 þegar lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu voru sameinuð. Hún vann við almenna löggæslu um árabil og síðan í tæknideildinni í rúmlega áratug, sem lögreglufulltrúi. Agnes varð aðstoðaryfirlögregluþjónn árið 2020 og stýrði lögreglustöðinni á Vínlandsleið í Reykjavík til 2023. Hún tók þá við sem aðstoðaryfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði (skipulögð brotastarfsemi og gegndi því starfi til síðustu mánaðamóta. Agnes er fyrsta konan sem er yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Um leið og Agnesi er óskað innilega til hamingju með ráðninguna er áfram vænst mikils af störfum hennar.