30 Mars 2010 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Kópavogsbraut á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kópavogsbraut í vesturátt, milli Suðurvarar og Kópavarar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði.

Mælingarnar á fimmtudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Kópavogsbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.