19 Janúar 2025 12:26
Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Rýmingar hafa verið ákveðnar á eftirtöldum reitum ;
Neskaupstaður
Reitur NE01 við Norðfjarðarveg (Atvinnusvæði)
Reitur NE02 við Norðfjarðarveg og Nausthvamm (Atvinnusvæði)
Reitur NE18 (Íbúasvæði með 37 íbúðum/heimilum)
Hægt er að skoða rýmingarreiti á heimasíðu Fjarðabyggðar, með því að opna „skipulag“ og þar „rýmingarsvæði“.
Fjarðabyggð | Kortsjá | Loftmyndir af Íslandi | Íslandskort | Map of Iceland
Fjöldahjálparstöð verður opnuð í Egilsbúð kl. 13:00 í dag.
Seyðisfjörður
Reitir SE01 og SE02 við Strandarveg (Atvinnusvæði)
Reitir SE24 og SE26 við Ránargötu (Atvinnusvæði)
Hægt er að skoða rýmingarreiti á heimasíðu Múlaþings, – með því að opna „skipulag“ og þar „rýmingarsvæði“.
Múlaþing | Kortsjá | Loftmyndir af Íslandi | Íslandskort | Map of Iceland
Fjöldahjálparstöð verður opnuð í Herðubreið kl. 13:00 í dag.
Björgunarsveitarmenn munu ganga í hús á rýmingarsvæðum og leiðbeina íbúum varðandi rýmingar.
Frekari tilkynninga er að vænta fljótlega.