1 Febrúar 2025 18:25

Gert er ráð fyrir áframhaldandi óvissustigi vegna ofanflóðahættu á Austfjörðum til mánudags. Viðbúnaður á tilteknum svæðum, á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði sem kynntur var í gær, er þó úr gildi fallinn.  

 Meðan óvissustig varir eru Vegfarendur og ferðamenn sem fyrr hvattir til að sýna aðgæslu á stöðum þar sem grjót getur fallið og nærri vatnsfarvegum þar sem krapaspýjur geta borist niður.

 Förum varlega.

 Sjá einnig hér; Aflétting óvissustigs vegna ofanflóða á sunnanverðum Vestfjörðum og Vesturlandi, óvissustig enn í gildi á Austfjörðum | Ofanflóð