25 Október 2016 12:10

Rúta með erlenda ferðamenn hafnaði utan vegar við Þingvallaveg, nálægt Skálafellsafleggjaranum,á ellefta tímanum í morgun. Talið er að um 40 farþegar hafi verið um borð í rútunni, auk ökumanns og leiðsögumanns. Fjölmennt lið björgunaraðila hélt þegar á vettvang, en strax var ljóst að um alvarlegt slys var að ræða. Slasaðir voru fluttir á Landspítalann, en jafnframt var fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ virkjuð.  Aðgerðir á vettvangi standa enn yfir og Þingvallavegur er áfram lokaður.

Lögreglan ítrekar að þeir sem kunna að hafa tekið upp farþega á svæðinu láti vita tafarlaust um slíkt í síma 112. Mjög áríðandi eru þessar upplýsingar komi strax fram svo hægt sé að tryggja að allir sem voru um borð í rútunni séu komnir i leitirnar.

Leiðsögumaður og ökumaður rútunnar eru íslenskir, en meirihluti farþeganna kínverskir.