19 Janúar 2025 19:21
Rýming er tók gildi í Neskaupstað og á Seyðisfirði er lokið. Um hundrað og sjötíu í heildina búa á þeim svæðum sem rýmd voru. Allir eru komnir með húsaskjól.
Annað:
Viðbótarrýming var ákveðin í dag af hálfu Veðurstofu á þremur rýmingarreitum á Seyðisfirði – reitum SE03, SE04 og SE05, – sjá mynd hér að neðan en þau svæði sem um ræðir eru lituð gul.
Um atvinnuhúsnæði er að ræða, m.a. gistiheimili. Rýming stendur yfir og gert ráð fyrir að henni ljúki fljótlega, Hún tekur gildi kl. 20:00.
Athygli er vakin á að öll starfsemi er óheimil í húsunum meðan á rýmingu stendur. Þau verða því lokuð á morgun.