19 Júní 2025 09:42

Nýverið var undirrituð samstarfsyfirlýsing opinberra stofnana um samstarf gegn skipulagðri brotastarfsemi sem beinist gegn hinu opinbera. Markmið samstarfsins er að efla mótstöðu samfélagsins gegn slíkum brotum og draga úr þeim veikleikum sem glæpasamtök kunna að nýta sér.

Þær stofnanir sem standa að samráðsvettvangnum eru; Auðkenni, Fjársýslan, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Skatturinn, Stafrænt Ísland, Tryggingastofnun, Vinnueftirlitið, Vinnumálastofnun, Útlendingastofnun, Þjóðskrá, héraðssaksóknari og ríkislögreglustjóri.

Skilvirkar forvarnir, aukin þjálfun og fræðsla, betri gæði auðkenningar og hröð og áreiðanleg upplýsingamiðlun er liður í því að efla mótstöðu samfélagsins gegn skipulagðri brotastarfsemi sem beinist gegn hinu opinbera. Unnið verður að því að efla enn frekar samvinnu milli ríkisstofnana og annarra lykilaðila á borð við sveitarfélög, atvinnulíf og samfélagsins alls.

Hópurinn verður kallaður saman að lágmarki þrisvar á ári þar sem farið verið yfir framgang verkefna og áherslur mótaðar. Þess á milli starfar framkvæmdateymi sem tilnefnt er í og starfar í umboði stofnananna. Fast sæti í teyminu eiga fulltrúar ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara og hefur teymið það hlutverk að vera leiðandi í þróun samstarfsins, taka ákvarðanir um áhersluverkefni, leiða umræður á samráðsfundum og útbúa aðgerðaráætlun. Ríkislögreglustjóri boðar samstarfsfundi samstarfsaðila, leiðir framkvæmdateymi og boðar fundi þess. Samstarfið nær til næstu fjögurra ára.