9 Janúar 2012 12:00

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld og tveir sömuleiðis á bæði laugardag og sunnudag. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 25-62 ára og ein kona, 17 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Í tveimur tilvikum þurfti að veita ökumönnum eftirför áður en þeir létu sér segjast.