9 Mars 2019 12:57

Fjórir einstaklingar eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar máls þar sem skotum var hleypt af í Vogunum snemma í morgun. Tilkynning um skothvelli við hús í hverfinu barst kl. 6.20 og fór lögreglan þegar á vettvang, en skothvellirnir voru þagnaðir þegar þangað var komið. Tveir einstaklingar sem voru í íbúð í húsinu voru handteknir og sömuleiðis tveir aðrir sem voru þar utandyra. Lögreglan lagði hald á skotvopn sem fannst í húsinu, auk nokkurra skothylkja sem fundust á vettvangi. Þá liggur fyrir að byssukúlur höfnuðu í tveimur bifreiðum, sem stóðu fyrir utan húsið. Af þessu er ljóst að mikil hætta var á ferðum og mildi þykir að enginn skyldi slasast þegar þetta átti sér stað. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.