31 Janúar 2025 11:23

Lögreglan á Suðurnesjum hefur í samstarfi við tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli unnið að rannsóknum umfangsmikilla fíkniefnamála í janúar mánuði.   Í tengslum við rannsóknir þessara mála hefur lögreglan á Suðurnesjum lagt hald á 47 kg af kannabisefnum 2 kg af kókaíni og 5100 töflur af MDMA svo eitthvað sé nefnt.  23 einstaklingar af 11 þjóðernum sæta gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna þessara mála.    Það sem af er ári hefur 46 flugfarþegum verið vísað frá landinu við komu þeirra til landsins.