11 Nóvember 2021 16:13

Eitt nýtt smit bættist við á Austurlandi í gærkvöldi, viðkomandi var ekki í sóttkví við greiningu. Smitið hefur tengsl við grunnskólann á Fáskrúðsfirði svo í kjölfarið var ákveðið í samráði við Aðgerðastjórn að hafa skólann og leikskólann á Fáskrúðsfirði lokaða í dag og á morgun, föstudag, á meðan unnið væri að smitrakningu. Um 60 mættu í sýnatöku í morgun á Reyðarfirði í tengslum við smitrakningu, niðurstöður úr þeirri sýnatöku er að vænta seint í kvöld eða fyrramálið.

Á Vopnafirði voru tekin um 100 sýni í gær, hluti af þeim var seinni sýnataka hjá einstaklingum í sóttkví. Sýnin voru send með flugi snemma í morgun svo niðurstöður ættu að liggja fyrir í kvöld.

Engin ný smit hafa greinst á Egilsstöðum.

Aðgerðastjórn fylgist áfram með gangi mála og sendir út frekari tilkynningar þegar nýjar upplýsingar berast.