14 Janúar 2025 09:06

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila fyrir árið 2024 hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. Á landsvísu fékk lögregla 2.379 tilkynningar um slík mál árið 2024. Er það tæplega 2% aukning samanborið við síðustu þrjú ár á undan. Ef aðeins er litið er til ársins 2023 var 3% fækkun tilkynninga. 

Jafngildir það að meðaltali tæplega 7 tilkynningum á dag, eða 198 tilkynningum á mánuði. Flest heimilisofbeldismál voru tilkynnt í desember, eða 105.  

Færri beiðnir um nálgunarbann 

Beiðnir um nálgunarbann árið 2024 voru 79, eða 26% fækkun miðað við meðaltal síðustu þriggja ára á undan. Miðað við árið 2023, fækkaði beiðnum um 14%. 

Mikilvægt þykir að skrá bæði ágreining og heimilisofbeldi til að fá heildstæða mynd af tilvikum og hvort tilvik geti leitt til ítrekaðra og alvarlegri atvika. Þegar eingöngu er litið til heimilisofbeldismála, þ.e. tilvika þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárásir, hótanir eða eignaspjöll, þá voru tilvikin 1.122. Tilkynningar um ágreining milli skyldra/tengdra aðila voru 1.257.  

Oftar metið heimilisofbeldi á höfuðborgarsvæðinu 

Í skýrslunni kemur fram að 25% heimilisofbeldismála tilkynnt til lögreglu voru á landsbyggðinni og 75% á höfuðborgarsvæðinu. Þegar horft er til ágreiningsmála voru 39% slíkra mála á landsbyggðinni og 61% á höfuðborgarsvæðinu. Ef horft er til mannfjölda íbúa á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni 1. janúar 2024 voru um 64% íbúa á höfuðborgarsvæðinu og 36% á landsbyggðinni.  

Þegar tengsl árásaraðila og árásarþola eru skoðuð árið 2024 kemur í ljós að heimilisofbeldismálum milli hjóna, sambúðarfólks eða hjá pari, núverandi eða fyrrverandi voru 716, eða 64% málanna og fækkaði um rúm 3% samanborið við síðustu þrjú ár.   

Skýrsluna má finna hér. 

Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Á ofbeldisgátt 112.is má finna nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða fyrir þolendur, aðstandendur og árásaraðila til að láta af hegðun sinni. 


Heimilisofbeldi er skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hendi nákomins, þ.e. árásaraðili og árásarþoli eru skyldir, tengdir eða hafa sögu um tengsl og eru tilvikin ekki bundin við heimili fólks. Útköll lögreglu þar sem ekki er grunur um brot eru skráð sem ágreiningur á milli skyldra og tengdra. 

Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is