20 Janúar 2021 13:44

Skráð voru 774 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í desember og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2020.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum. Mikil fjölgun var á minniháttar eignaspjöllum og hafa skráðar tilkynningar um eignaspjöll ekki verið fleiri síðan 2010. Vert er þó að taka fram að árið 2020 bárust álíka margar tilkynningar um eignaspjöll og bárust að meðaltali árin 2017-2019.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um heimilisofbeldi. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fækkaði á milli mánaða en álíka margar tilkynningar bárust um tilvik þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi og í nóvember.

Mikil fjölgun var á skráðum kynferðisafbrotum í desember en það má einna helst rekja til aðgerða lögreglunnar í vændismálum. Undanfarnar vikur hefur LRH verið í sérstökum aðgerðum tengt mansali en vændi er ein af birtingarmyndum mansals. Þetta er einn af þeim þáttum í skipulagðri brotastarfsemi sem LRH leggur mikla áherslu á.

Alls bárust 16 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í desember og fjölgar þessum beiðnum á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í desember. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í desember voru skráð 621 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 21 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.