24 Mars 2009 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, sex á laugardag og þrír á sunnudag. Sex voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Þetta voru átta karlar á aldrinum 18-48 ára og tvær konur.

Yngri konan lenti í umferðaróhappi í Kópavogi en bíll hennar hafnaði á kyrrstæðri vinnuvél. Konan hefur aldrei öðlast ökuréttindi enda er hún aðeins 16 ára. Eldri konan, sem er á sjötugsaldri, lenti líka í umferðaróhappi. Hún missti stjórn á bíl sínum í Hafnarfirði og fór yfir á rangan vegarhelming og hafnaði á öðrum bíl sem kom aðvífandi. Bíll konunnar hafnaði að lokum utan vegar. Ölvaður karl á þrítugsaldri missti sömuleiðis stjórn á bíl sínum þegar hann átti leið um gatnamót Miklubrautar og Lönguhlíðar um helgina. Bíll mannsins hafnaði á bifhjóli og síðan á annarri bifreið áður en hann stöðvaðist á umferðarljósavita. Hinn drukkni ökumaður og farþegi hans, sem einnig var ölvaður, stungu af. Þeir komu á lögreglustöð klukkutíma síðar til að sækja bílinn en voru þá handteknir og settir í fangageymslu til að sofa úr sér áfengisvímuna.