2 Febrúar 2010 12:00

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag og sex einnig á sunnudag. Tíu voru teknir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 18-39 ára og fimm konur, 19-50 ára. Þrír þessara ökumanna reyndust jafnframt vera próflausir.