22 Janúar 2020 11:28

Bráðabirgðaniðurstaða krufningar á líkum tveggja kínverskra ferðamanna, karlmanns sem fæddur var 1997 og konu sem fædd var 1999, sem fundust á Sólheimasandi þann 16. janúar s.l. bendir til þess að fólkið hafi orðið úti í óveðri sem gekk yfir dagana þar á undan. Ekki eru merki um aðkomu utanaðkomandi aðila og ekki er grunur um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. Áfram verður unnið úr þeim gögnum sem aflað hefur verið til að varpa frekari ljósi á ferðir þeirra á þessum slóðum.   Endanleg niðurstaða krufningar mun liggja fyrir að einhverjum vikum liðnum.

Aðstandendur fólksins komu til landsins s.l sunnudag og fundaði lögregla með þeim og fulltrúum kínverksa sendiráðsins á mánudag.