5 Desember 2017 17:04

Sex hundruð og þrjátíu ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Fimm þeirra reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var enn fremur gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.