9 Desember 2011 12:00

Sjö hundruð og sjötíu ökumenn voru stöðvaðir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Einn ökumaður reyndist ölvaður við stýrið og á hann ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fjórum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Sem fyrr höfðu margir ökumenn ekki ökuskírteini meðferðis en slíkt kæruleysi kostar viðkomandi 5.000 kr. Við umferðareftirlitið naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar félaga sinna frá embætti ríkislögreglustjóra.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.