Frá vettvangi á Norðurströnd.
29 Janúar 2019 15:15

Í síðustu viku slösuðust tuttugu vegfarendur í ellefu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 20. – 26. janúar.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 20. janúar. Kl. 18.37 fauk rúta með 30 manns út af Vesturlandsvegi við Hofsland. Sjö farþegar voru fluttir á slysadeild. Kl. 18.39 skullu tvær bifreiðar saman á Korpúlfsstaðavegi. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild. Og kl. 19.13 varð aftanákeyrsla á Breiðholtsbraut austan Stekkjabakka á leið til vesturs. Ökumaður og farþegi leituðu sér aðhlynningar á slysadeild.

Mánudaginn 21. janúar kl. 15.16 varð árekstur með bifreið, sem var ekið norður Kringlumýrarbraut, og bifreið, sem var ekið suður Kringlumýrarbraut og beygt austur Suðurlandsbraut. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 22. janúar. Kl. 10.34 varð tólf ára drengur á göngustíg við horn Fróðaþings og Elliðahvammsvegar fyrir snjóruðningstæki. Hann var fluttur á slysadeild. Kl. 12.23 varð árekstur með bifreið, sem var ekið suður Lyngháls, og bifreið, sem var ekið vestur Stuðlaháls. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar ætlaði að leita sér læknisaðstoðar í framhaldinu. Og kl. 17.15 varð árekstur með bifreið, sem var ekið vestur Norðurströnd, og bifreið, sem var ekið austur Norðurströnd og yfir á rangan vegarhelming gegnt Bollagörðum. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnar, sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, var fluttur á slysadeild. Hjólbarðar bifreiðarinnar voru án alls mynsturs, þrátt fyrir snjóalög og hálku.

Miðvikudaginn 23. janúar kl. 13.25 var bifreið ekið austur Suðurhellu og aftan á snjóruðningstæki gegnt ÓB. Ökumaðurinn bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 24. janúar. Kl. 14.24 valt snjóruðningstæki þegar verið var að skafa snjó af gangstétt við gatnamót Miklubrautar og Stakkahlíðar. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 15.29 varð árekstur með bifreið, sem var ekið suður Vatnsmýrarveg, og bifreið, sem var ekið vestur Hringbraut. Við áreksturinn snerist fyrrnefnda bifreiðin og lenti á bifreið, sem var ekið norður Vatnsmýrarveg. Tveir ökumannanna voru fluttir á slysadeild.

Föstudaginn 25. janúar kl. 8.22 varð aftanákeyrsla á Digranesvegi gegnt MK. Við áreksturinn kastaðist fremri bifreiðin á gangandi vegfaranda, sem var á leið yfir götuna. Hann ætlaði sjálfur að leita sér aðhlynningar á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli allra vegfaranda á mikilvægi þess að fara ávallt varlega í umferðinni. Það á ekki síst við um ökumenn – hvort sem um er að ræða bifreiða eða reiðhjóla.