Frá vettvangi á Vesturlandsvegi.
30 Mars 2023 14:02

Í síðustu viku slösuðust sjö vegfarendur í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 19. – 25. mars, en alls var tilkynnt um 24 umferðaróhöpp í umdæminu.

Sunnudaginn 19. mars kl. 21.57 féll hjólreiðamaður af reiðhjóli í Straumi við Breiðhöfða í Reykjavík. Hjólreiðamaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild.

Þriðjudaginn 21. mars kl. 8.02 missti ökumaður á leið vestur Vesturlandsveg í Mosfellsbæ, við Álafosskvísl, stjórn á bifreið sinni sem hafnaði á vegriði. Mjög mikil hálka og ísing var á vettvangi. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.

Miðvikudaginn 22. mars kl. 8.09 var bifreið ekið vestur Vesturlandsveg í Reykjavík, á móts við Keldnaholt, og aftan á aðra bifreið á sömu akrein. Mikil og hæg umferð var þegar slysið varð. Tveir ætluðu sjálfir að leita sér aðstoðar á slysadeild.

Fimmtudaginn 23. mars kl. 15.39 var bifreið ekið á reiðhjól á Rafstöðvarvegi í Elliðaárdal í Reykjavík. Hjólreiðamaðurinn ætlaði að sjálfur að leita sér aðstoðar á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt föstudaginn 24. mars. Kl. 8.50 var bifreið ekið á hjólreiðamann á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík, hjá Melaskóla. Hjólreiðamaðurinn fór sjálfur á slysadeild. Og kl. 19.15 var bifreið ekið aftan á aðra bifreið á sömu akrein á Reykjanesbraut í Garðabæ, á móts við Góu. Fremri bifreiðin var kyrrstæð þegar slysið varð, en ökumaður hennar hafði staðnæmst til að hleypa gæsahópi yfir götuna. Talið er að ökumaður aftari bifreiðarinnar hafi blindast af sólinni í aðdraganda slyssins. Einn var fluttur á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.