8 Apríl 2025 14:34
Í síðustu viku lést einn vegfarandi og ellefu slösuðust í sjö umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 30. mars – 5. apríl, en alls var tilkynnt um 44 umferðaróhöpp í umdæminu.
Sunnudaginn 30. mars kl. 14.22 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Seljaskóga í Reykjavík, en þeim var ekið úr gagnstæðri átt. Í aðdraganda slyssins hugðist annar ökumannanna taka vinstri beygju á gatnamótunum og aka inn í Seljaskóga þegar árekstur varð með þeim. Báðir ökumennirnir og einn farþegi voru fluttir á slysadeild.
Fjögur umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 1. apríl. Kl. 7.45 valt vörubifreið þegar henni var ekið af Suðurlandsvegi inn á afleggjara að Bolöldu. Hálka og ísing var á vettvangi. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. Kl. 9.16 var rútu ekið á kyrrstæða rútu á rútustæði við ráðhúsið við Vonarstræti í Reykjavík, en farþegar voru í þeim báðum. Annar ökumannanna og tveir farþegar voru fluttir á slysadeild. Kl. 14.42 var bifreið ekið á gangandi vegfaranda á Reykjanesbraut í Reykjavík, norðan megin brúarinnar (Breiðholtsbraut að Nýbýlavegi). Hann var fluttur á slysadeild og úrskurðaður látinn eftir komuna þangað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Og kl. 15.12 var bifreið ekið austur Bústaðaveg í Reykjavík og aftan á aðra bifreið á sömu leið, en ökumaður hennar hafði dregið úr hraðanum vegna umferðar fram undan. Annar ökumannanna og farþegi voru fluttir á slysadeild.
Fimmtudaginn 3. apríl kl. 9.28 var rafmagnshlaupahjóli ekið á bifreið í Borgartúni í Reykjavík, við Katrínartún. Ökumaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild.
Föstudaginn 4. apríl kl. 23.40 var rafmagnshlaupahjóli ekið á kyrrstæða bifreið í Fálkahlíð í Reykjavík. Ökumaðurinn, sem er grunaður um ölvunarakstur, var fluttur á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.