15 Apríl 2025 11:25
Í síðustu viku slösuðust níu vegfarendur í sjö umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 6. – 12. apríl, en alls var tilkynnt um 28 umferðaróhöpp í umdæminu.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 6. apríl. Kl. 19.12 varð árekstur bifreiðar og rafmagnshlaupahjóls í Bjarkarholti í Mosfellsbæ. Í aðdragandanum var bifreiðinni ekið vestur götuna og beygt inn á bílastæði við Bjarkarholt 21 á sama tíma og hjólinu var ekið eftir gangstétt sem þarna er svo að árekstur varð með þeim. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 21.45 var bifreið ekið á gangandi vegfaranda í Vesturbergi í Reykjavík. Sá var að koma úr strætisvagni og gekk aftur fyrir hann áleiðis yfir götuna þegar bifreiðin kom aðvífandi. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt mánudaginn 7. apríl. Kl. 14.57 var bifreið ekið á reiðhjól á gangbraut í Hamraborg í Kópavogi, við Salinn. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 15.07 rákust saman tvær vespur á bifreiðastæði við Gullhamra á Þjóðhildarstíg í Reykjavík. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.
Þriðjudaginn 8. apríl kl. 18.51 varð árekstur rafmagnshlaupahjóls og reiðhjóls á gangbraut í Súlunesi í Garðabæ, en þau komu úr gagnstæðri átt. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild.
Fimmtudaginn 11. apríl kl. 18.37 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Hringbrautar og Hlíðarfóts í Reykjavík. Annarri bifreiðinni var ekið austur Hringbraut, gegn rauðu ljósi, og á hina bifreiðina, sem var ekið inn á gatnamótin á grænu ljósi frá Hlíðarfæti. Við áreksturinn valt síðarnefnda bifreiðin nokkrar veltur, en ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar er grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild. Við áreksturinn skall hjólbarði í hlið þriðju bifreiðarinnar, sem við það varð óökufær.
Laugardaginn 12. apríl kl. 20.04 féll ökumaður af rafmagnshlaupahjóli á Vínlandsleið í Reykjavík. Hann var fluttur á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.