27 Febrúar 2012 12:00

Ellefu umferðarslys urðu á gatnamótum Reykjavíkurvegar, Hraunbrúnar og Flatahrauns á árunum 2008-2011. Á sama tímabili urðu tíu umferðarslys á Reykjanesbraut, eða á vegarkaflanum frá Rauðhellu að kirkjugarðinum við Hvammabraut, en þessir staðir skera sig úr þegar skoðaðar eru tölur um umferðarslys í Hafnarfirði. Í samstarfi vegagerðar, sveitarfélaga og lögreglu er leitast við að greina orsök óhappa á þessum stöðum og leita lausna.

Á árunum 2008-2011 urðu jafnframt sjö umferðarslys á gatnamótum Fjarðarhrauns og Hólshrauns og fimm á gatnamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns. Á sama tímabili urðu ennfremur fjögur umferðarslys á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Stakkahrauns.

Heimild: Umferðarstofa

Gatnamót Reykjavíkurvegar, Flatahrauns og Hraunbrúnar.