13 Janúar 2025 08:43
Lögreglan vill vekja athygli á því að í kjölfar frosts og kulda og þegar að þíða tekur eykst hætta á því að holur myndist í vegum, þ.m.t. á malbikuðum vegum borgarinnar. Rétt eins og kemur fram hér að neðan er umtalsverð hætta á að tjón verði á bifreiðum við að aka ofan í holur sem sumar hverjar geta verið djúpar. Því vill lögregla beina því til ökumanna að gæta varúðar til að skemma ekki bifreiðar sínar.
Í gær var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna tjóns á minnst 3 bifreiðum eftir að þeim hafði verið ekið í holu á vegi í íbúðarhverfi í austurborginni. Haft var samband við veghaldara og honum gert að gera ráðstafanir. Þá bárust ítrekaðar tilkynningar vegna tjóna á bifreiðum eftir að þeim hafði verið ekið í holur á stofnbraut í austurborginni. Um var að ræða nokkrar holur á kafla vegarins. Að minnsta kosti 9 bifreiðar urðu fyrir tjóni á hjólbörðum og þurftu ökumenn því að skipta um hjólbarða til að halda för sinni áfram. Veghaldari var upplýstur og gert að gera ráðstafanir.
Í gær var líka, enn og aftur, óskað aðstoðar lögreglu og nú vegna hættuástands sem var sagt hafa skapast er fjöldi bifreiða var ekið í holu í hringtorgi á stofnbraut í austurborginni. Reyndust einnig 9 bifreiðar vera með tjónaða hjólbarða og þurftu ökumenn að skipta um hjólbarða til að halda för sinni áfram. Veghaldari var upplýstur og gert að gera ráðstafanir.