12 Nóvember 2008 12:00

Vegna ítrekaðra frétta í DV og á dv.is um „valdbeitingarhunda“ lögreglunnar skal tekið fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á ekki og hefur ekki átt lögregluhunda sem þjálfaðir eru til valdbeitingar og hefur ekki þjálfað hunda til valdbeitingar. Hjá embættinu er í dag starfræktur einn hundur sem þjálfaður er til sporleitar og munaleitar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notast við sérþjálfaða hunda tollstjórans í Reykjavík við leit að fíkniefnum í samræmi við samstarfssamning embættanna. Þeir hundar eru ekki þjálfaðir til valdbeitingar.

Í DV í dag og á vef blaðsins er fjallað um hundamál lögreglunnar í Reykjavík og vísað til umfjöllunar á vef lögreglunnar. Embætti lögreglustjórans í Reykjavík var lagt niður fyrir tæpum tveimur árum síðan. Umfjöllun blaðsins byggir á þeim hluta lögregluvefjarins sem geymir upplýsingar frá aflögðum lögregluembættum.