3 Júlí 2025 15:49
Undanfarnar vikur hafa netöryggissveitinni CERT-IS borist tilkynningar þar sem svikarar hafa blekkt fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir. Svo virðist sem að yfirstandandi bylgja beinist einna helst að fyrirtækjum í verktaka- og byggingariðnaði og viðskiptavinum þeirra. CERT-IS beinir því til almennings að vera á varðbergi og tryggja að greiðsluupplýsingar séu réttar. Þá er sömuleiðis afar mikilvægt að sannreyna allar beiðnir um breytingar á reikningsupplýsingum. Mjög mikilvægt er að fyrirtæki brýni fyrir sumarstarfsmönnum og starfsfólki í afleysingum að vera á varðbergi, en óprúttnir aðilar láta oft á sér kræla á sumrin í þeirri von að starfsmannavelta vegna sumarfría auki líkurnar á því að starfsfólk falli fyrir svikum.
Fyrirmælasvik er tegund svika þar sem fórnarlömb eru blekkt til að framkvæma aðgerðir á borð við bankamillifærslur á reikninga glæpamanna. Oftar en ekki berast tölvupóstar frá pósthólfi sem óprúttinn aðili hefur brotist inn í eða póstur berst frá netfangi sem er keimlíkt viðurkenndu fyrirtækjanetfangi.
Sjá nánar á heimasíðu CERT-IS