19 Mars 2025 08:37
Að gefnu tilefni vill Vegagerðin benda á að þar sem unnið er að tvöföldun Reykjanesbrautar eru í gildi hraðatakmarkanir, sem vegfarendur er beðnir um að virða. Á framkvæmdasvæðinu er 70 km/klst, en á svæðinu frá Hafnarfirði vestur fyrir Straum er 50 km/klst og 30 km/klst um hjáleið um Straumsvík.