24 Ágúst 2016 09:24

Kl.02:23 í nótt barst lögreglunni á Vestfjörðum tilkynning um að ágreiningur hafi orðið meðal áhafnarmeðlima um borð í erlendri skútu, er lá þá við bryggju á Suðueyri. Um borð voru alls 5 erlendir áhafnarmeðlimir.  Einn áhafnarmeðlimanna hafði hótað að beita skotvopni.  Ljóst var að skotvopn, fleiri en eitt voru um borð í skútunni á þessum tíma.  Þrír áhafnarmeðlimana fóru frá borði en tveir urðu eftir.  Annar þeirra sem eftir varð um borð hafði haft í þessum hótunum.

Fimm lögreglumenn fóru þá þegar á vettvang, búnir viðeigandi varnarbúnaði og vopnum. Á sama tíma var kallað eftir aðstoð sérsveitar.  Lögreglumenn á vettvangi tryggðu aðstæður meðan beðið var sérsveitar.  Þyrla LHG flutti sérsveitarmenn vestur og í framhaldi komu þeirra, eða kl.06:40, var farið um borð í skútuna og sakborningur handtekinn.  Hann var færður í fangageymslu á Ísafirði.  Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum.

Skúta þessi mun hafa komið til hafnar á Suðureyri um kl.21:00 í gærkveldi.