19 Apríl 2016 11:04

Laugardaginn 30. apríl munu almannavarnir Eyjafjarðar ásamt öllum viðbragðsaðilum á því svæði halda hópslysaæfingu sem fara mun fram á Eyjafjarðarbraut eystri. Gera má ráð fyrir að allt að 100 manns taka þátt í æfingunni auk leikara sem taka að sér að leika þolendur. Þarna mun verða sviðsett stórt rútuslys með allt að 50 manns. Auk viðbragðsaðila á svæði almannavarna Eyjafjarða mun Samhæfingarmiðstöðin Skógarhlíð og Landhelgisgæsla Íslands taka þátt í æfingunni. Þennan dag má því gera ráð fyrir einhverri truflun á umferð á þessu svæði. Æfingin er liður í innleiðingu á viðbragðsáætlun vegna hópslysa sem verið hefur í vinnslu í samstarfi við Almannavarnadeil Ríkislögreglustjóra síðastliðna mánuði.