19 Mars 2018 09:52

Brot 179 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá þriðjudegi til fimmtudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á rúmlega þrjátíu og níu klukkustundum fóru 12.284 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimm óku á 100 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 127.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.