17 Apríl 2018 12:37

Brot 243 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 13. apríl til mánudagsins 16. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur dögum fóru 21.943 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Ellefu óku á 100 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 137.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.