13 Október 2016 15:40

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í suðurátt, að Menntavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Nauthólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.