30 Júní 2016 22:32

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í vesturátt, að Fornuströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.