12 Apríl 2017 17:08

Brot 191 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.417 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.