18 Janúar 2018 10:32

Brot 51 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 848 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og hálkuþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.