23 Ágúst 2016 17:22

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, við Ystasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.