12 Júní 2017 10:35

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.