22 Mars 2017 17:08

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna atviks sem átti sér stað rétt austan við skemmtistaðinn Tivoli bar í Hafnarstræti í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 19. febrúar sl., og er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 0111@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.