6 Júlí 2017 19:30

Fyrirhuguð er tímabundin lokun á Geirsgötu föstudaginn 7. júlí meðan núverandi hjáleið verður færð til. Lokað verður kl. 9 á föstudagmorgun þegar mesta morgunumferðin er farin hjá. Lokunin mun standa yfir í 4 daga til mánudagsins 10. júlí. Hjáleið verður um Skúlagötu, Ingólfsstræti, Hverfisgötu og Tryggvagötu. Engin breyting verður á akstri strætisvagna á svæðinu.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna biðlund og velja sér aðrar leiðir eftir því sem mögulegt er því búast má við umferðartöfum. Gönguleiðir um svæðið verða áfram meðfram Arnarhóli og um gönguljós yfir Geirsgötu vestan við Kolaportið. Gert er ráð fyrir að opna Geirsgötu aftur mánudaginn 10. júlí og verður þá umferðinni hleypt á hluta bílakjallarans sem verið er að byggja á svæðinu.