Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0300 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Í síðustu viku var haldinn forvarnardagur í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Efni forvarnardagsins var ungir ökumenn og umferðaröryggi. Voru fulltrúar frá Samgöngustofu, Lögreglunni á Vesturlandi og Neyðarlínu með fyrirlestra á sal þar sem krakkarnir gátu síðan spurt út í efni fyrirlestranna. Að loknum fyrirlestrunum var farið út og þar fengu krakkarnir að sjá viðbragðsaðila, lögreglu, sjúkraflutninga HVE, Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar vinna á slysavettvangi sem búið var að setja upp fyrir utan skólann. Lýsti Sigurður Þór Elísson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, vinnu viðbragðsaðila á vettvangi í gegnum hátalarakerfi svo áhorfendur vissu hvað væri að gerast.
Eftir að vinnu viðbragðsaðila lauk var farið aftur inn þar sem boðið var upp á mat og krakkarnir fengu samantekt á því sem hafði átt sér stað um daginn.
Vill Lögreglan á Vesturlandi þakka öllum fyrir þennan skemmtilega dag og þá helst krökkunum í fjölbrautarskólanum sem sýndu forvarnardeginum mikinn áhuga.
www.youtube.com/watch?app=desktop&v=vsYWJHdmelc&fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR0TLctsw4MOHNzIhD30QsPe...
... Sjá meiraSjá minna
1 CommentComment on Facebook
Frábært framtak
Starf samfélagslögreglu felst ekki eingöngu í því að ræða við börn og unglinga í nútíma samfélagi. Í gærkvöldi fór ein samfélagslöggan okkar hérna á Vesturlandi á fund Lions klúbbsins Öglu í Borgarnesi. Var ástæða heimsóknarinnar að kynna fyrir þessum myndarlega hóp helstu hætturnar sem leynast á internetinu og hvað væri til ráða til að forðast þær. Sköpuðust skemmtilegar umræður og höfðu þær margar hverjar fengið gylliboð eða grunsamleg skilaboð á netmiðlum. ... Sjá meiraSjá minna
5 CommentsComment on Facebook
Vel gert👌
Takk fyrir mjög svo fræðandi erindi 😊
Takk fyrir fræðandi erindi og skemmtilega framsetningu 👍👏
Takk fyrir fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur
Svo flott og skemmtilegt starf hjá þeim í Öglu Borgarnesi. Flott og þörf umræða 🤗
Samfélagslöggurnar á Vesturlandi afhentu öllum leikskólabörnum á Vesturlandi endurskinsmerki í heimsóknum sínum í leikskóla í febrúar og byrjun mars. Voru þetta hátt í 1000 endurskinsmerki merkt lögreglunni. Fengu elstu börnin fræðslu um hvar þau ættu að setja endurskinsmerkin og mikilvægi bílstóla og bílbelta. Að löggan væri vinur þeirra og þau gætu alltaf leitað til lögreglunnar. Var síðan lituð mynd með krökkunum sem þau höfðu mjög gaman af.
Viljum við þakka fyrir góðar móttökur á öllum þeim leikskólum sem við heimsóttum.
... Sjá meiraSjá minna
5 CommentsComment on Facebook
Takk kærlega fyrir :) mín 4 ára var mjög hamingjusöm með heimsóknina og endurskinsmerkið!
Takk fyrir komuna í Garðasel. Það var mikil ánægja með heimsóknina hjá börnum og starfsfólki.
Vel gert hjá ykkur! Minn 3 ára kom mjög sáttur heim af leikskólanum um daginn og tilkynnti mér það að löggan væri vinur hans 🥰
Þið eruð frábærar löggur !!!
👏👏👏👏👏👏👏 Frábært