
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0300 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Fyrsti samráðsfundur Öruggara Vesturlands var haldinn í gær á Hótel Hamri í Borgarnesi. Fjölmennt var á fundinum og mættu tæplega hundrað mans á fundinn. Samstarfsvettvangurinn um Öruggara Vesturland var settur á stofn á Farsældardeginum 16. maí á síðasta ári. Að samstarfinu standa rúmlega tuttugu aðilar á Vesturlandi, sveitafélög, HVE, menntastofnanir, SSV, Vesturlandspófastdæmi, sýslumaðurinn á Vesturlandi, íþróttasambönd, Lögreglustjórinn á Vesturlandi ofl.
Ríkislögreglustjóri setti fundinn og styður við verkefnið.
Á fundinum var áherslan lögð á umræðu og fyrirlestra um farsæld barna og ungmenna og hvernig samstarfsaðilar verkefnisins geta stutt betur við þau.
Erindi voru frá Hugrúnu Hrönn Kristjánsdóttur, þýðandi bókarinnar Líkaminn geymir allt um tengsl áfalla og fíknar, Bergdísi Wilson, sviðsstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu um úrræði þeirra Heillaspor, Föruneyti barna og Landsteymið og Þóru Jónsdóttur, sérfræðing hjá SAFT – netöryggismiðstöðinni og Fjölmiðlanefnd um hinn stafræna heim barna.
Á fundinum unnu þátttakendur í hópum með raunhæf dæmi um börn í vanda. Þá var rætt hvernig væri hægt að þróa frekar úrræði fyrir börn á Vesturlandi, hvað væri hægt að gera til að styðja betur við fjölskyldur á svæðinu og hvað mætti gera enn betur.
Bára Daðadóttir, verkefnastjóri farsældarmála hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi: „Samráðsfundurinn sýnir glögglega þann mikla áhuga og vilja sem er til staðar á Vesturlandi til að vinna saman að farsæld barna og ungmenna. Með samstarfi allra þessara aðila getum við unnið markvisst að því að styrkja stuðningsnetið og fjölga úrræðum fyrir börnin okkar og fjölskyldur þeirra.“
Jón Arnar Sigurþórsson, forvarnarfulltrúi og samfélagslögreglumaður hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi: “Við hjá lögreglunni höfum þegar fundið hvað Öruggara Vesturland sem lykilþáttur í vinnu okkar að samfélagslöggæslu skiptir miklu máli. Það tengir okkur öll sem komum að velferð barna og ungmenna. Von okkar er að fundurinn í dag muni efla enn frekar samvinnu og upplýsingaflæði milli stofnana og sveitarfélaga til að bæta öryggi og farsæld barna á Vesturlandi.”
Hægt er að hafa samband við samfélagslögregluna á Vesturlandi með því að senda tölvupóst á vesturland@logreglan.is
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Svava Lydia Sigmundsdóttir er fundin heil á húfi. Lögreglan á Vesturlandi þakkar veitta aðstoð. ... Sjá meiraSjá minna
2 CommentsComment on Facebook
Hafið þið séð nýjasta story hennar sorglegt hvernig þið takið á andlega veiku fólki. Því miður. Hef mikla reynslu af því í gegn um ykkur.
Flott
Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Svövu Lydiu Sigmundsdóttur. Síðast er vitað af ferðum hennar á Torreveja svæðinu á Spáni 4. apríl síðastliðinn. Svava er 33 ára, mjög grönn, með svart sítt hár með ljósan topp. Eru þeir sem kunna að hafa upplýsingar um ferðir hennar eða dvalarstað eftir 4. apríl, beðnir að setja sig í samband við lögregluna á Vesturlandi í gegnum netfangið vesturland@logreglan.is ... Sjá meiraSjá minna
1 CommentComment on Facebook
Under arrest for stealing hearts