
Lögreglustöðin á Þórshöfn
Eyrarvegi 2
680 Þórshöfn
Sími: 444 2855
Netfang: nordurland.eystra@logreglan.is
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 2800 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
This message is only visible to site admins
Problem displaying Facebook posts. Backup cache in use.
Lögreglan á Norðurlandi eystra
4 mánuðum síðan
Í tilefni af ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri hefur dómsmálaráðherra kynnt aðgerðir til eflingar almennri löggæslu á Akureyri og nágrenni. Styrking löggæslunnar samkvæmt þeim felst í því að bæta einum manni við útkallsvakt lögreglu allan sólarhringinn, sem nemur 4 stöðugildum og kostar 62 milljónir króna. Þegar ákvörðun var tekin í sumar var þessi styrking lögreglunnar ekki á borðinu og ekki hafði verið litið til þeirra áhrifa sem lokunin hefði á lögregluna á Norðurlandi eystra. Fjögur stöðugildi er það sem ríkislögreglustjóri taldi í áliti sínu vera lágmarks styrking. Áður hefur embættið bent á að til þess að sinna föngum þurfa tveir lögreglumenn að fara inn úr útkallsliði en skammtímavistanir hjá embættinu eru um 300 á ári og er sá fjöldi nokkuð stöðugur á milli ára. Lögreglan hefði því þurft frekari styrkingu.
Þá er mikils virði fyrir rannsóknir embættisins að tryggja eigi fullnægjandi gæsluvarðhaldsúrræði á Akureyri sem fangelsismálastofnun mannar og lýsir embættið yfir ánægju sinni með það.
Fjárframlög sem komið hafa til embættisins á síðustu árum vegna fjölgunar ferðamanna, hálendiseftirlits og landamæraeftirlits eru vel nýtt og komu ekki til vegna lokunar fangelsisins heldur af annarri löggæsluþörf. Í skýrslu ríkisendurskoðunar síðan í febrúar 2020 kemur fram að embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur hvað fæsta lögreglumenn á bakvið hverja þúsund íbúa eða 1,7 á meðan til dæmis lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur 3,9 þrátt fyrir að það sé landfræðilega minna og stutt sé í aðstoð frá öðrum lögregluliðum. Varðandi fjölgun í sérsveit á Akureyri í tvo menn, þá hefur sá maður þegar hafið störf og ákvörðunin ríkislögreglustjóra var ekki tekin í tengslum við ákvörðun um lokun fangelsisins. Þá er bent á að fyrir nokkrum árum voru sérsveitarmenn á Akureyri fjórir.
Embættið lýsir ánægju sinni með að ákvörðun um lokun hafi verið frestað á meðan skoðað var með yfirveguðum hætti hvaða áhrif hún hefði á löggæsluna og að tillit hafi verið tekið til röksemda embættisins.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri. ... Sjá meiraSjá minna
Lögreglan á Norðurlandi eystra
4 mánuðum síðan
Á miðnætti tóku í gildi nýjar reglur um breytingar á samkomutakmörkunum.
Helstu ráðstafanir í gildi:
Fjöldatakmörkun. Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðast við 200 fullorðna. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin.
Almenn nálægðartakmörkun. Sóttvarnarlæknir hvetur til að 1 metra nálægðartakmarkanir séu viðhafðar sem oftast í umgengi við aðra, sérstaklega óskylda eða ótengda aðila.
Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Þar sem ekki er hægt að tryggja 1 metra fjarlægð milli einstaklinga þarf að nota andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur. Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar um notkun andlitsgríma. ... Sjá meiraSjá minna
Gildandi takmarkanir í samkomubanni
www.covid.is
Hlusta Gildandi takmarkanir í samkomubanniGildandi takmörkun samkvæmt auglýsingu á samkomum vegna farsóttar nær frá og með 7. september 2020 (kl. 00.00) og gildir til 27. september 2020 (kl. ...Lögreglan á Norðurlandi eystra
4 mánuðum síðan
Biðjum TRAMPOLIN eigendur að stökkva til í einum grænum hvelli og taka saman eða fella nú fyrir kvöldið, þau trampolin sem standa í görðum víða um norðurland eystra. Þau geta valdið stórtjóni og verið hættuleg lífi fólks þegar þau fjúka af stað. ... Sjá meiraSjá minna
Við einmitt bundum okkar trampólín niður í gærkveldi enda ekki seinna vænna þar sem það er búið að vera ágætis gola hérna í dag.