4 Október 2020 15:03

Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var í  hafnaði utan vegar við Heydalsveg.

Slysið átti sér stað á öðrum tímanum í nótt.  Bifreiðin hafnaði ofan í á og tókst vegfarendum sem að komu að ná manninum og konu sem einnig var í bifreiðinni, út úr henni.

Endurlífgunartilraunir á manninum báru ekki árangur.  Konan var orðin mjög köld en með meðvitund og líklega ekki mikið slösuð. Var hún flutt með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Akranesi.

Lögreglan á Vesturlandi rannsakar slysið og naut aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu við vettvangsrannsókn.  Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom einnig á vettvang.