19 Mars 2023 13:02

Alvarlegt vinnuslys varð síðastliðinn föstudag á sveitabýli í Ásahreppi. Verið var að vinna við dráttarvél og klemmdist þar maður sem lést af sárum sínum. Ekki er unnt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.